Vermaelen enn og aftur meiddur

Thomas Vermaelen í leiknum í gær.
Thomas Vermaelen í leiknum í gær. AFP

Thomas Vermaelen, varnarmaður Barcelona á Spáni, verður ekki með liðinu í næstu leikjum eftir að hann meiddist á kálfa í 2:1 sigri liðsins á Atletico Madrid í gær.

Belgíski miðvörðurinn kom til Barcelona frá Arsenal fyrir einu ári síðan, en hann meiddist stuttu eftir að hann kom til félagsins. Hann spilaði ekki sinn fyrsta leik fyrr en gegn Villarreal í síðustu umferð síðustu leiktíðar.

Hann hefur einungis spilað fjóra leiki í heildina fyrir Barcelona og skoraði eitt mark en hann meiddist á kálfa í leik liðsins gegn Atletico Madrid í gær. Óvíst er hve lengi hann verður frá, en ljóst að þetta er mikið áfall fyrir bæði Barcelona og leikmanninn sjálfan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert