Ekki góð byrjun hjá Sigurði Ragnari

Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson mbl.is/Styrmir Kári

Kínverska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur ekki farið vel af stað undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar.

Kína tapaði í morgun fyrir Norður-Kóreu, 2:0, í úrslitakeppni Austur-Asíumótsins sem fram fer í Japan og skoraði Yun-Mi Kim bæði mörk N-Kóreu.

Kínverska landsliðið hefur þar með tapað öllum þremur leikjum sínum undir stjórn Sigurðar Ragnars en liðið beið ósigur gegn Áströlum í tveimur vináttuleikjum á dögunum, þeim fyrri 3:0 og þeim síðari 5:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert