Lagði upp mark í sjö marka bikarslag

Logi Tómasson leikur með Strömsgodset.
Logi Tómasson leikur með Strömsgodset. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Logi Tómasson og félagar í Strömsgodset féllu í dag út gegn Lilleström í 16-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir sjö marka bikarslag liðanna í Drammen.

Logi lagði upp fyrsta mark Strömsgodset í leiknum en liðið lenti tvisvar tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik og tókst síðan að jafna metin í 3:3 í síðari hálfleik. Lilleström skoraði síðan sigurmark í framlengingu, 4:3.

Logi hefur verið í stóru hlutverki hjá Strömsgodset það sem af er tímabilinu en hann kom til félagsins frá Víkingi í ágúst á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert