Stefán Teitur Þórðarson, landsliðsmaður í knattspyrnu, var valinn besti leikmaðurinn í dönsku bikarkeppninni tímabilið 2023-2024 eftir úrslitaleikinn á Parken í Kaupmannahöfn í dag.
Silkeborg vann þar AGF, 1:0, og að leik loknum var Stefán heiðraður sérstaklega með þessum verðlaunum.
Stefán lék alla átta leiki Silkeborg í bikarkeppninni á tímabilinu og skoraði í þeim tvö mörk.