Tryggvi Bjarnason: Það var mjög sætt að jafna

Tryggvi Bjarnason í eldlínunni gegn Grindavík.
Tryggvi Bjarnason í eldlínunni gegn Grindavík. mbl.is/hag

Tryggvi Bjarnason var hetja Garðæinga þegar liðið gerði 1:1 jafntefli gegn KR í Pepsí deildinni í kvöld. Tryggvi skoraði jöfnunarmark Stjörnunnar í uppbótartíma en KR komst yfir í fyrri hálfleik: „Það var mjög sætt að ná að jafna á lokasekúndunum. Ég er mjög sáttur við að við skyldum ná að sína karakter og jafna. Að gefast ekki upp þó við værum að tapa,“ sagði Tryggvi í samtali við mbl.is í kvöld.

Ítarlega er fjallað um leikinn í Morgunblaðinu í fyrramálið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert