Þetta hefur verið erfitt

David de Gea.
David de Gea. AFP

David de Gea markvörður Manchester United segir undanfarnar vikur hafa verið erfiðar en liðið hefur tapað þremur leikjum í röð, gegn Chelesa, Everton og nú siðast WBA.

„Þetta hefur verið erfitt undanfarið með þessi þrjú töp en við þurfum að halda áfram, horfa fram á veg og reyna að gera betur, reyna að vinna leiki,“ sagði de Gea.

„Mér fannst við spila vel gegn Chelesa og West Bromwich en við þurfum að skapa okkur fleiri færi og skora fleiri mörk. Við vorum óheppnir (gegn WBA) þar sem við spiluðum miklu betur en þeir. En svona er fótboltinn, þeir skoruðu, það sem mér fannst vera heppnismark og vörðust allan tímann. Þetta var einfalt skot fyrir mig (aukaspyrnan hjá Chris Brunt) en hún fór í annan og í hornið,“ sagði de Gea.

Manchester United mætir Crystal Palace kl. 16.30 í dag í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert