Skúli sæmdur gullmerki - myndskeið af heimsmetinu

Skúli Óskarsson og Sigurjón Pétursson formaður Kraftlyftingasambandsins sem afhenti honum …
Skúli Óskarsson og Sigurjón Pétursson formaður Kraftlyftingasambandsins sem afhenti honum merkið.

Skúli Óskarsson, kraftlyftingamaður frá Fáskrúðsfirði og fyrrverandi heimsmetshafi, var í dag sæmdur fyrstur allra gullmerki Kraftlyftingasambands Íslands.

Skúli setti heimsmet í réttstöðulyftu í Laugardalshöllinni árið 1980 þegar hann lyfti 315,5 kílóum í 75 kg flokki. Hann varð þar með fyrstur íslenskra íþróttamanna til að setja heimsmet, en það ár  var hann kjörinn íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna í annað skipti. Skúli, sem var um árabil einn vinsælasti íþróttamaður þjóðarinnar, var áður kjörinn árið 1978.

Skúli tók við gullmerkinu í upphafi þings Kraftlyftingasambands Íslands.

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið af heimsmeti Skúla og fögnuðinn sem braust út í kjölfarið þar sem kappinn var m.a. tolleraður á sviðinu:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert