Mayweather skellti Conor McGregor

Mayweather sést hér kátur eftir að dómari stoppaði bardagann í …
Mayweather sést hér kátur eftir að dómari stoppaði bardagann í tíundu lotu. AFP

Floyd Mayweather er enn ósigraður í boxhringnum en í nótt sigraði hann MMA-kappann Con­or McGreg­or í tíu lotu boxbardaga.

Írinn McGregor hóf bardagann af talsverðum krafti en Mayweather sýndi hvað í honum býr þegar líða tók á.

Dómari stöðvaði síðan bardagann í tíundu lotu og var Mayweather dæmdur sigur með tæknilegu rothöggi. Hann er því enn ósigraður í boxhringnum, hefur unnið 50 bardaga, en Mayweather hefur sagt að þetta hafi verið síðasti bardagi hans á ferlinum. 

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert