Birgir: „Sáttur við hugarfarið“

Birgir Leifur Hafþórsson.

Birgir Leifur Hafþórsson. Reuters

mbl.is Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is

Birgir Leifur Hafþórsson endaði í 50.-57. sæti af þeim 69 kylfingum sem komust í gegnum niðurskurðinn á Suður-Afríku meistaramótinu í golfi á Evrópumótaröðinni. Birgir lék á 12 höggum yfir pari samtals (79-73-75-73) en hann fékk aðeins 8 fugla á hringjunum fjórum, 49 pör, 11 skolla og fjórar brautir lék hann á skramba (+2) eða verr.

Birgir segir að aðstæður hafi verið erfiðar alla fjóra keppnisdagana á Suður-Afríku meistaramótinu og það hafi einkennt skor keppenda þar sem að heimamaðurinn James Kingston sigraði á 4 höggum undir pari. Oliver Wilson frá Englandi varð annar á 3 höggum undir pari og Darren Clarke deildi þriðja sætinu með þremur öðrum kylfingum á 1 höggi undir pari.  

Gamla hetjan Greg Norman eða "Hvíti hákarlinn" endaði í 7. sæti ásamt fleiri kylfingum en hann lék á pari vallar.  Helstu skrautfjaðrir mótsins, Suður-Afríkumennirnir Ernie Els og Retief Goosen, enduðu á 5 höggum yfir pari og enduðu þeir í 16.-20. sæti. Angel Cabrera frá Argentínu sem sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu fyrr á þessu ári endaði á 7 höggum yfir pari vallar.

„Við vorum að berjast við vindinn alla fjóra dagana en ég var mjög sáttur við hugarfarið og baráttuna hjá mér á þessu móti,“  sagði Birgir Leifur við mbl.is í dag. Að hans mati voru upphafshöggin sterkasta vopnið á mótinu en það var margt annað sem hefði mátt vera betra. „Ég var ekki að hitta eins margar flatir og áður í tilætluðum höggafjölda. Höggin með járnkylfunum voru ekki eins nákvæm hjá mér og áður og það er erfiðara að ná góðu skori ef sá þáttur er ekki í lagi,“ bætti Birgir við.  

Hann leikur á ný á Evrópumótaröðinni þann 10. janúar á móti sem fram fer í Suður-Afríku en mikil ferðalög einkenna Evrópumótaröðina þar til í mars á næsta ári þegar byrjað verður að keppa á völlum í Evrópu.  

Lokastaðan

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is