Tiger tekur forystuna í FedEx úrslitakeppninni

Tiger Woods þakkar stuðninginn.
Tiger Woods þakkar stuðninginn. Reuters.

Tiger Woods snjallasti kylfingur heims hafði mikla yfirburði á BMW meistaramótinu sem lauk á Cog Hill vellinum í kvöld. Tiger lagði grunninn að öruggum sigri sínum með því að setja vallarmet í gær þegar hann lék á 62 höggum.

Tiger lauk leik á samtals 19 höggum undir pari og sýndi að hann getur enn borið höfuð og herðar yfir andstæðinga sína þrátt fyrir hnémeiðslin sem hann gekk í gegnum. Tiger hefur nú tekið forystuna í FedEx úrslitakeppni PGA mótaraðarinnar. 

Tiger slær upp úr sandgryfju á BMW mótinu.
Tiger slær upp úr sandgryfju á BMW mótinu. Reuters.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert