Dagur og Markús á leikskýrslu

Dagur Sigurðsson í landsleik.
Dagur Sigurðsson í landsleik. mbl.is/Árni

Dagur Sigurðsson og Markús Máni Michaelsson, fyrrum landsliðsmenn í handbolta, eru báðir á leikskýrslu hjá Val sem heimsækir Fram í Eimskipsbikarkeppninni í kvöld.

Svo virðist sem Valsmenn séu með opið pláss á leikskýrslunni en Dagur og Davíð Ólafsson sitja báðir fyrir aftan varamannabekkinn.  Auk þeirra er hinn örfhenti Hjalti Gylfason í leikmannahópi Vals en hann lék áður með Val og einnig Víkingi. Þá er Baldvin Þorsteinsson leikfær en hann á við meiðsli að stríða í öxl. 

Dagur hefur ekki leikið með Val síðan 1996 og Markús tók sér frí í fyrra en var aðal maður liðsins þegar Valur varð Íslandsmeistari 1997. Markús er ekki í byrjunarliði Vals.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert