Sebastian áfram með Selfoss

Sebastian Alexandersson heldur áfram þjálfun Selfossliðsins á næsta leiktíð.
Sebastian Alexandersson heldur áfram þjálfun Selfossliðsins á næsta leiktíð. Brynjar Gauti

Sebastian Alexandersson heldur áfram þjálfun karlaliðs Selfoss í handknattleik. Undir hans stjórn tryggði liðið sér á dögunum sæti í úrvalsdeild karla á næstu leiktíð með því að vinna 1. deildina.

Frá þessu er greint á vef Sunnlenska fréttablaðsins í kvöld.  Þar segir jafnframt að samkomulag hafi náðst við markvörðinn Birki Fannar Bragason um að leika áfram með Selfoss liðinu.

Ekki hefur verið gengið frá ráðningu á aðstoðarþjálfara fyrir Selfossliðið en Finnbogi Grétar Sigurbjörnsson sem gegndi starfinu í vetur var nývrið ráðinn þjálfari kvennaliðs Fylkis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert