Guðmundur hættur með FH

Guðmundur Karlsson.
Guðmundur Karlsson. mbl.is

Guðmundur Karlsson hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari kvennaliðs FH í handknattleik en hann staðfesti þetta við mbl.is rétt í þessu.

FH er í fimmta sæti úrvalsdeildar kvenna, N1-deildarinnar, með sex stig eftir sjö leiki.

Guðmundur hefur þjálfað FH-liðið í hálft fjórða ár en hann tók við liðinu sumarið 2007. Það endaði í 8. sæti deildarinnar fyrsta árið undir hans stjórn og síðan í 6. sætinu tvö undanfarin ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert