KA og Akureyri bæði í 1. deild

Akureyri verður áfram með lið næsta vetur, sem Þórsarar sjá …
Akureyri verður áfram með lið næsta vetur, sem Þórsarar sjá um að reka. mbl.is/Sigfús Gunnar

Akureyringar munu eiga tvö lið í 1. deild karla í handknattleik á næsta keppnistímabili en KA og Akureyri handboltafélag vera þar með sitt liðið hvort.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem HSÍ var að senda frá sér og er undirituð af fulltrúum KA, Þórs og formanni HSÍ.

Þar kemur fram að Þór muni sjá alfarið um rekstur liðsins Akureyri handboltafélag en KA muni senda eigið lið til keppni.

KA og Þór muni hins vegar senda áfram sameiginlegt lið til keppni í kvennaflokki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert