Leysigeisla beint að Argentínumönnum

Leysigeislanum var meðal annars beint að Lionel Messi í leiknum …
Leysigeislanum var meðal annars beint að Lionel Messi í leiknum í gær eins og sést hér. Reuters

FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, hefur fyrirskipað að kannað verði hvernig áhorfendum tókst að komast með svokallaða leysigeislapenna inná Ellis Park leikvanginn í gær þar sem Argentína og Nígería mættust á HM í Suður-Afríku.

Leysigeisla var beint í átt að leikmönnum Argentínu sem og þjálfaranum Diego Maradona eins og vökulir sjónvarpsáhorfendur tóku eflaust eftir.

Í yfirlýsingu FIFA kemur fram að málið verði rannsakað en hvorugt liðanna hafi kvartað yfir atvikinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert