Hafa áhyggjur af meiðslum lykilmanna

Forsvarsmenn íslenska liðsins hafa áhyggjur af meiðslum lykilleikmanna.
Forsvarsmenn íslenska liðsins hafa áhyggjur af meiðslum lykilleikmanna.

Brynjólfur Jónsson, læknir íslenska landsliðsins í handknattleik, segir að meiðsli, sem Guðjón Valur Sigurðsson og Logi Geirsson urðu fyrir í leiknum gegn Pólverjum í gær á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi séu áhyggjuefni.

Guðjón Valur fékk þungt högg á annað lærið og Logi fékk högg á vinstri öxlina en hann fór nýlega úr axlarlið.

Brynjólfur segir, að Guðjón Valur fari í skoðun í dag. Þá fer Logi í hljóðbylgjumeðferð í Lemco.

Engar æfingar verða hjá íslenska liðinu í dag en það leikur við Slóvena á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert