Cassell til Boston Celtics?

Sam Cassell er líklega á leið til Boston Celtics.
Sam Cassell er líklega á leið til Boston Celtics. Reuters

Sam Cassell er einn af leikreyndustu leikstjórnendum í NBA-deildinni í körfuknattleik enda er hann 38 ára gamall. Cassell hefur komist að samkomulagi um starfslok sín hjá LA Clippers og eru allar líkur á því að hann semji við Boston Celtics og leiki með liðinu það sem eftir er af tímabilinu.

Denver Nuggets og Dallas Mavericks höfðu einnig áhuga á leikmannninum sem var í meistaraliði Houston Rockets 1994 og 1995. Cassell hefur komið víða við á ferlinum og leikið með Phoenix Suns, Dallas Mavericks, New Jersey Nets, Milwaukee Bucks, Minnesota Timberwolves og nú síðast LA Clippers. Boston yrði því áttunda liðið þar sem að Cassell er á launaskrá hjá í NBA-deildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert