Sigurður gerði nýjan samning við Keflvíkinga

Sigurður handsalar samninginn við Keflvíkinga í kvöld.
Sigurður handsalar samninginn við Keflvíkinga í kvöld. mbl.is/Víkurfréttir

Sigurður Ingimundarson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Keflavíkur í körfuknattleik skrifaði í kvöld undir nýjan tveggja ára samning við Suðurnesjaliðið. Sigurður stýrði Keflvíkingum til sigurs í úrslitaeinvígi við Snæfell um Íslandsmeistaratitilinn og var á lokahófi KKÍ útnefndur þjálfari ársins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert