Erla dregur fram skóna

Erla Reynisdóttir til hægri á myndinni í leik með Grindavík …
Erla Reynisdóttir til hægri á myndinni í leik með Grindavík fyrir fáeinum árum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Kvennalið Keflavíkur heldur áfram að styrkja sig en nú hefur fyrrverandi  landsliðskonan Erla Reynisdóttir bæst í hóp liðsins. Erla hefur á ferli sínum unnið til þó nokkra titla með liði Keflavíkur og spilaði síðast tímabilið 2004-2005 með liði Grindvíkinga, en það er eina árið sem hún hefur spilað hérlendis utan Keflavíkur.

„Ég spilaði einn leik með b liði Keflavíkur í Borganesi um daginn og hafði nokkuð gaman af því. Í kjölfarið hafði Jonni þjálfari [Jón Halldór Eðvaldsson] samband við mig spurði hvort ég vildi ekki taka sprettinn núna í úrslitakeppninni og ég sló bara til.  Ég er svo sem ekkert að fara að gera neina töfra hluti fyrir liðið, hópurinn var sterkur áður en ég kom og ef ég get aðstoðað eitthvað þá er skorast ég ekki undan því,“ sagði Erla í samtali við Morgunblaðið í gær.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert