Meistarafögnuður Snæfells, myndasyrpa

Hlynur Bæringsson tekur á móti Íslandsmeistarabikarnum og félagar hans bíða …
Hlynur Bæringsson tekur á móti Íslandsmeistarabikarnum og félagar hans bíða spentir eftir því að hann rífi hann á loft. mbl.is/hag

Snæfell úr Stykkishólmi fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í körfuknattleik karla í fyrsta sinn á fimmtudaginn eftir stórsigur á útivelli gegn Keflavík. Leikmenn og stuðningsmenn Snæfells fögnuðu gríðarlega í leikslok. Haraldur Guðjónsson ljósmyndari Morgunblaðsins var í Keflavík og hér má sjá brot af þeim myndum sem hann tók. Lokahóf KKÍ fer fram í kvöld á Brodway.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert