Phoenix jafnaði gegn Lakers

Robin Lopez (15) fagnar eftir 3ja stiga körfu frá félaga …
Robin Lopez (15) fagnar eftir 3ja stiga körfu frá félaga hans, Jason Richardson (23), fyrir Phoenix gegn Lakers. Reuters

Phoenix Suns jafnaði í nótt einvígið gegn LA Lakers með góðum heimasigri, 115:106. Liðin eru þar með jöfn, 2:2, í baráttu sinni í úrslitum Vesturdeildar NBA í körfuknattleik.

Það voru varamenn Phoenix, með Channing Frye í fararbroddi, sem gerðu útslagið að þessu sinni en þeir skoruðu 54 af 115 stigum liðsins, á meðan varamenn Lakers gerðu aðeins 20 stig í leiknum. Frye og Leandro Barbosa skoruðu 14 stig hvor.

Af byrjunarliðsmönnum Phoenix var Amar'e Stoudamire atkvæðamestur með 28 stig og tók 10 fráköst. Nefbrotinn Steve Nash skoraði 15 stig og átti 8 stoðsendingar.

Kobe Bryant var áfram í góðum gír hjá  Lakers þó það dygði ekki til en hann skoraði 38 stig og tók 10 fráköst. Pau Gasol skoraði 15 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert