Bjarni: Í góðri stöðu

Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var að vonum kampakátur með sigur sinna kvenna í kvöld gegn Keflavík í öðrum undanúrslitaleik liðanna í Dominosdeild kvenna í körfuknattleik, 81:65. Haukar hafa þar með tvo vinninga í rimmunni gegn engum. 

Bjarni hrósaði liði sínu fyrir góða frammistöðu í seinni hálfleik. Bjarni jánkaði því að liðið væri komið í dauðafæri í að komast í úrslitaeinvígið en minnti hinsvegar á að það er vissulega hægt að klikka á dauðafærum.

Nánar er rætt við Bjarna á meðfylgjandi myndskeiði.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert