Hver leikur verður orrusta

Stefan Bonneau, leikmaður Njarðvíkur, sagðist vita það fyrirfram að fyrsti leikurinn gegn nýkrýndum bikarmeisturum Stjörnunnar yrði ekki auðveldur og játaði að hann væri nokkuð lemstraður eftir leikinn sem Njarðvík vann eftir framlengingu, 88:82.

Stefan talaði um að hver leikur fyrir sig í þessari rimmu yrði orrusta á milli liðana. Stefan bætti því við að lið hans ætti nokkuð inni þrátt fyrir sigur og margt sem þeir gætu gert betur í næsta leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert