Indiana kvartar yfir heimadómgæslu

Rick Carlisle les dómaranum Josh Tiven pistilinn í fjórða leikhluta …
Rick Carlisle les dómaranum Josh Tiven pistilinn í fjórða leikhluta í nótt AFP/ELSA

Indiana Pacers hafa sent forráðamönnum NBA deildarinnar myndbönd af 78 atvikum sem Pacers telja að hafi ranglega verið dæmd New York Knicks í hag í fyrstu tveimur leikjum liðanna í úrslitakeppni NBA deildarinnar.

Þjálfari Indiana, Rick Carlisle, fékk tvær tæknivillur og útilokun í tapi Pacers í nótt en New York leiðir einvígið 2:0. Carlisle segir Pacers hafa fundið 29 atvik í fyrsta leik liðanna og 49 í nótt þar sem rangir dómar hjálpuðu Knicks.

„Ég get lofað því að við sendum þessi myndbönd í kvöld“ sagði Carlisle að leik loknum í nótt. „New York Knicks geta undirbúið sig undir það, þeir sjá myndböndin líka. Ég hef brýnt fyrir leikmönnum mínum að láta dómarana í friði en við eigum skilið að fá sanngjarna dómgæslu“.

Carlisle var ekki hættur og sagði að lið frá minni borgum fengu ósanngjarna meðferð gegn stórborgaliðunum og sagði dómarana í Madison Square Garden hafa hrifist með stemningunni í áhorfendum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert