Áætlað að bónusgreiðslur hríðfalli

Afkastatengdar aukagreislsur til verðbréfasala munu minnka verulega í ár.
Afkastatengdar aukagreislsur til verðbréfasala munu minnka verulega í ár. Reuters

Lægðin sem fjármálamarkaðir hafa gengið í gegnum í kjölfar hruns á húsnæðislánamarkaðnum vestanhafs mun að öllum líkindum verða þess valdandi að aukagreiðslur og afkastatengdar bónusgreiðslur muni snarlækka í fyrsta sinn í fimm ár.

Í samtali við Bloomberg viðskiptavefinn sagðir Gary Goldstein hjá Whitney Group í New York að svartsýnin væri mikil meðal starfsmanna fjármálafyrirtækja á Wall Street.

„Bónuspotturinn fer minnkandi,” sagði Goldstein.

Á fréttavef Bloomberg kemur fram, að bónusgreiðslur í fjármagnsgeiranum vestra hafa verið margföld föst árslaun viðkomandi starfsmanna en í ár er reiknað með að þær greiðslur muni minnka um allt að 5% frá því í fyrra.

Þeir sem áætlað er að komi verst út úr þessu eru þeir sem selja og búa til verðbréf sem byggja á húsnæðislánum og húsnæðislánasjóðum. Talið er að ef sá markaður rétti ekki úr kútnum fyrir áramót muni þriðji hver starfsmaður á honum missa vinnuna og áætlað er að þar geti bónusgreiðslur fallið um allt að 40%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK