Kaupsamningum fækkar um 61,4%

mbl.is

Þinglýstum kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 61,4% í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. Alls var 310 kaupsamningum þinglýst í apríl í ár en 804 í sama mánuði í fyrra. Veltan dróst saman um 60,8%, úr 24,4 milljörðum króna í 9,6 milljarða króna.

Á vef Fasteignamats ríkisins kemur fram að fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2008 var 310. Heildarvelta nam 9,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 30,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,3 milljörðum króna.

Fækkar um 12,4% og veltan minnkar um 20,2% milli mánaða

Þegar apríl 2008 er borinn saman við mars 2008 fækkar kaupsamningum um 12,4% og velta minnkar um 20,2%. Í mars 2008var þinglýst 354 kaupsamningum, velta var 12 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 33,8 milljónir króna.

Þegar apríl 2008 er borinn saman við apríl 2007 fækkar kaupsamningum um 61,4% og velta minnkar um 60,8%. Í apríl 2007 var þinglýst 804 kaupsamningum, velta var 24,4 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,3 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í apríl 2008 var 23. Þar af voru 12 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir.  Heildarveltan var 436 milljón krónur og meðalupphæð á samning 19 milljónir króna.

Á sama tíma var 26 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um eignir í sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir.  Heildarveltan var 1.434 milljónir króna og meðalupphæð á samning 55,2 milljónir króna. 

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Akranesi. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign.  Heildarveltan var 72 milljónir króna og meðalupphæð á samning 14,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 47 kaupsamningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 33 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um eignir í sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir.  Heildarveltan var 15.408 milljónir króna og meðalupphæð á samning 327,8 milljónir króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK