Nýr Glitnir stofnaður

Birna Einarsdóttir er bankastjóri Nýja Glitnis.
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Nýja Glitnis.

Nýr Glitnir banki hf. hefur verið stofnaður um innlenda bankastarfsemi Glitnis banka hf. Nýi  bankinn tekur yfir innlendar eignir Glitnis til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Alþjóðleg starfsemi Glitnis er skilin frá. Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Glitnis verða opin. 

Í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu segir, að með því að taka ákvörðun um  að flytja hluta af starfsemi Glitnis banka hf. til nýs banka, sem sé að fullu í eigu íslenska ríkisins sé tryggð áframhaldandi bankastarfsemi fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. 

Í ákvörðuninni felst m.a. að nýi bankinn yfirtekur allar innstæðuskuldbindingar í bankanum á Íslandi og sömuleiðis stærstan hluta eigna bankans sem tengjast íslenskri starfsemi s.s. lán og aðrar kröfur.

Á næstu 30 dögum mun fara fram mat óháðs aðila á verðgildi eigna og skulda og lokauppgjör.  Eigið fé nýja bankans verður 110 milljarðar króna sem ríkið leggur fram.  Stærð efnahagsreiknings hins nýja banka verður um 1200 milljarðar króna.

Birna Einarsdóttir hefur verið ráðin bankastjóri.  Lykilstjórnendur hins nýja banka munu sjá um kynningu á starfsemi hans en heiti hans verður Nýi Glitnir banki hf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK