Stýrivextir lækkaðir

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur samþykkt  að lækka að stýrivexti um 3,5 prósentur og verða stýrivextir bankans því 12%.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að að mikil umskipti hafi orðið í íslenskum þjóðarbúskap undanfarnar vikur. Íslenska bankakerfið hafi ekki staðist þá raun sem erfið markaðsskilyrði og brestur á trausti á veraldarvísu í efnahagsmálum ásamt innlendri áhættusækni hafi skapað.
 
Margvísleg störf hafa horfið á augabragði, eftirspurn hnignað og væntingar eru með daufasta móti á alla mælikvarða mælt. Næstu áhrif brota bankalífsins verða erfið og samdráttur verulegur. Bráðabirgðaspár litist af þessu.

Þá kemur fram, að bankastjórnin hafi átt óformlegar viðræður við aðila vinnumarkaðarins og ýmsa fleiri að undanförnu og yfirfarið þessa alvarlegu stöðu. Niðurstaða bankastjórnar sé því sú að lækka stýrivexti um 3,5 prósentur nú.

Næsti vaxtaákvörðunardagur er 6. nóvember nk.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK