Eigið fé Kaupþings 75 milljarðar

Höfuðstöðvar Kaupþings við Borgartún.
Höfuðstöðvar Kaupþings við Borgartún. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Á næstu 90 dögum mun fara fram mat óháðs aðila á verðgildi eigna og skulda og lokauppgjör Kaupþings en nýr Kaupþing banki hefur verið stofnaður formlega.  Eigið fé nýja bankans verður 75 milljarðar króna sem ríkið leggur fram.  Stærð efnahagsreiknings hins nýja banka verður um 700 milljarðar króna.

Er Kaupþing samkvæmt þessu minnstur nýju ríkisbankanna þriggja. Eigið fé Nýja Landsbankans verður 200 milljarðar króna  og stærð efnahagsreiknings um 2.300 milljarðar króna. Eigið fé Nýja Glitnis verður 110 milljarðar króna og stærð efnahagsreiknings um 1200 milljarðar króna.

Nýi  bankinn tekur yfir innlendar eignir Kaupþings til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Alþjóðleg starfsemi Kaupþings er skilin frá. Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Kaupþings verða opin, að því er fram kemur á vef Fjármálaeftirlitsins.

Þann 9. október 2008 ákvað Fjármáleftirlitið að nýta heimild Alþingis með vísan til 100 gr. a  laga nr. 161/2002, sbr. lög nr. 125/2008, vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði, til að taka yfir rekstur Kaupþings banka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur nú tekið ákvörðun um  að flytja hluta af starfsemi Kaupþings banka hf. til nýs banka sem stofnaður hefur verið og er að fullu í eigu íslenska ríkisins. Með ákvörðuninni er tryggð áframhaldandi bankastarfsemi fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. 

Í ákvörðuninni felst m.a. að nýi bankinn yfirtekur allar innstæðuskuldbindingar í bankanum á Íslandi og sömuleiðis stærstan hluta eigna bankans sem tengjast íslenskri starfsemi s.s. lán og aðrar kröfur.

Nánar um ákvörðun Fjármálaeftirlitisins

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK