Innistæðueigendur fara í mál

Höfuðstöðvar Singer & Friedlander.
Höfuðstöðvar Singer & Friedlander.

Þúsundir manna á eynni Mön, sem áttu innistæðureikninga hjá Edge reikningum Kaupþings, íhuga nú að fara í mál við breska ríkið. Er það vegna þess að Bretar hafa neitað að tryggja innistæður Manverja hjá Kaupþingi.

Ríkisstjórn Manar stendur við bak innistæðueigendanna og mun í dag senda nefnd til Lundúna, þar sem þess verður krafist að innistæður Manverja í breskum útibúum verði sendar til eyjarinnar.

Eyjarskeggjar á Mön eru láta ekki þar við sitja, heldur hefur hópur 30 innistæðueigenda höfðað mál á hendur skiptastjóra Kaupþings í Bretlandi. Höfðu þeir reynt að draga fé sitt út úr bankanum áður en Kaupþing var tekið yfir af íslenska ríkinu, en bresk yfirvöld hafi komið í veg fyrir það. Munu um 120 innistæðueigendur í viðbót hafa áhuga á að koma að dómsmálinu.

Á vef breska blaðsins Times er einnig sagt frá því að hluthafar Kaupþings hafi ráðið lögmannsstofuna Grundberg Mocatta Rakison til að athuga grundvöll lögsóknar á hendur breska ríkinu. Telja margir hluthafar að ákvörðun breskra stjórnvalda að frysta eignir Kaupþings í Bretlandi hafi valdið því að bankinn fór í þrot.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK