Veðin færð með samþykki fyrirtækjanna

stækka

BOB STRONG

Þrjú lánasöfn gamla Glitnis voru sett að veði gegn lánveitingu í Seðlabanka Evrópu fyrir milligöngu Seðlabanka Lúxemborgar. Þar á meðal eru lán nokkurra íslenska fyrirtækja, m.a. sjávarútvegsfyrirtækja. Var það gert að höfðu samráði og að fengnu  samþykki viðkomandi fyrirtækja, að því er segir í athugasemd frá skilanefnd Glitnis.

„Í ljósi umfjöllunar fjölmiðla um að veð vegna lána tiltekinna íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja hafi komist í eigu erlendra banka vill skilanefnd gamla Glitnis taka fram að þau lánasöfn sem vísað er til eru á forræði gamla Glitnis sem sér um umsýslu og innheimtu þeirra.

Vegna breyttra aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum á síðustu misserum hafa fjármálastofnanir heimsins í auknum mæli tryggt sér aðgengi að lausu fé með því að setja einstök lánasöfn að veði hjá seðlabönkum, meðal annars Seðlabanka Evrópu.

 Hjá gamla Glitni voru þrjú slík lánasöfn sett að veði gegn lánveitingu í Seðlabanka Evrópu fyrir milligöngu Seðlabanka Lúxemborgar. Þar á meðal eru lán nokkurra íslenska fyrirtækja, m.a. sjávarútvegsfyrirtækja. Var það gert að höfðu samráði og að fengnu  samþykki viðkomandi fyrirtækja.

Aðkoma Deutsche Bank

I kjölfar hruns á fjármálamarkaði lokaðist gjaldeyrismarkaður á Íslandi. Til að fyrirbyggja vanskil vegna þessa ástands var þeim tilmælum beint til viðkomandi fyrirtækja að þau greiddu beint til móttökuaðila seðlabanka Evrópu, sem er Deutsche Bank. Nú hefur greiðslufyrirmælum verið komið í fyrra horf og er innheimta og forræði þessara lánasafna eftir sem áður á höndum gamla Glitnis. Áréttað skal að Deutsche Bank er eingöngu milligönguaðili um greiðslu og á enga kröfu á viðkomandi fyrirtæki.

Samningar við Evrópska Seðlabankann

Við fall íslensku bankanna komust umrædd lánasöfn í uppnám þar sem Seðlabanki Evrópu öðlaðist rétt til að ganga að veðum sínum og leysa lánin til sín. Skilnefnd gamla Glitnis hefur á síðustu vikum unnið að samkomulegi við seðlabankann sem er nú á lokastigi. Í því felst m.a. að gamli Glitnir hefur svigrúm í  3-5 ár til þess að vinna úr þessari stöðu.

 Á næstu árum er því mikilvægt að þau félög sem um ræðir lendi ekki í vanskilum og tryggi sér endurfjármögnun um leið og aðstæður á fjármagnsmörkuðum leyfa. Til viðbótar hefur skilanefnd Glitnis samið um að andvirði fasteignalánasafns sem er í eigu dótturfélags bankans í Lúxemborg renni til niðurgreiðslu lána hjá Seðlabanka Evrópu. Sú ráðstöfun mun flýta fyrir því að hægt verði að leysa þessi mál.

Það skal ítrekað viðkomandi lánasöfn eru á forræði gamla Glitnis og bankinn sér um innheimtu þeirra," að því er segir í athugasemd frá skilanefnd gamla Glitnis.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Innsýn í reksturinn

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Landsbankinn að selja hlut sinn í Hampiðjunni

Hampiðjan
25.5. Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir