Fyrir fólkið en ekki bankana

Barack og Michelle Obama taka við Hvíta húsinu í Washington …
Barack og Michelle Obama taka við Hvíta húsinu í Washington á morgun. Reuters

Helstu ráðgjafar Baraks Obama, sem tekur við embætti forseta Bandaríkjanna á morgun, segja að hin nýja ríkisstjórn muni einbeita sér að því að koma fólkinu og fyrirtækjunum í landinu til hjálpar í stað þess að horfa fyrst og fremst til þess að aðsoða bankana í landinu.

Lawrence Summers, efnahagsráðgjafi Obama, segir að áherslan verði á að reisa efnahagslíf Bandaríkjanna. Sagði hann í samtali við CBS-sjónvarpsstöðina í gær, að hann væri ósammála þeirri ákvörðun Henry Paulson, núverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, að hafa varið mestu af helmingnum af 700 milljarða dollara neyðarsjóðnum, sem þingið samþykkti á síðasta ári, til að bjarga bönkunum. „Aðalatriðið er að koma lánastarfseminni til handa fyrirtækjum og heimilum í gang á ný, en það hefur ekki tekist til þessa,“ sagði hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK