Dótturfélög SPRON sameinuðu móðurfélagi

Stjórn SPRON hefur ákveðið að stefna skuli að sameiningu dótturfélaga þess, Frjálsa Fjárfestingabankans og SPRON verðbréfa við móðurfélagið. Netbankinn verður áfram starfandi í óbreyttri mynd sem sjálfstætt dótturfélag.

Í tilkynningu frá SPRON segir, að sameiningarnar séu liður í þeim  skipulagsbreytingum sem unnið hafi verið að, að undanförnu en markmið þeirra sé að SPRON verði betur í stakk búið til þess að mæta breyttu rekstrarumhverfi og ná fram þeirri hagræðingu sem nauðsynleg er við núverandi aðstæður.

Unnið verður að sameiningu félaganna á næstu vikum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK