Íslenskar eignir færðar undir Milestone

Karl Wernersson er stjórnarformaður Milestone.
Karl Wernersson er stjórnarformaður Milestone.

Íslenskar eignir Moderna Finance, félögin Sjóvá, Askar Capital og Avant, verða fluttar á ný undir móðurfélagið Milestone á Íslandi.  Moderna seldi í morgun tryggingafélagið  Moderna Forsäkringar og sjóðstýringarfyrirtækið Aktie-Ansvar.  Þá stefnir félagið að því að selja líftryggingafélagið Moderna Liv og bankann Banque Invik.

Fram kemur í tilkynningu að salan á eignum Moderna Finance sé gerð í samráði við skilanefnd Glitnis sem er stærsti lánardrottinn Milestone. Með sölunni sé horfið frá áformum um fjárhagslega endurskipulagningu sænsku Moderna samstæðunnar, sem eigendur félagsins og skilanefnd Glitnis hafi unnið að undanfarnar vikur. Endurskipulagningin gerði m.a. ráð fyrir að Glitnir leggði félögunum til nýtt fé til endurfjármögnunar lána.

„Stöðugt versnandi aðstæður á mörkuðum og verulegt vantraust sænskra aðila gagnvart íslensku eignarhaldi varð hins vegar til þess að áætlanir náðu ekki fram að ganga og því mun Glitnir ekki leggja sænsku félögunum til nýtt fé," segir í tilkynningunni.

Það sé sameiginlegt mat skilanefndar Glitnis og stjórnenda Milestone að við núverandi aðstæður sé íslenskum hagsmunum best borgið með því að selja erlendar eignir Moderna samstæðunnar og að innlendar eignir verði færðar aftur undir móðurfélagið á Íslandi. Fram kemur að áætlað söluverð erlendra eigna Moderna samstæðunnar sé mun lægra en vonir stóðu til að fjárhagsleg endurskipulagning og sala eigna á síðari stigum myndi skila. Forsvarsmenn Milestone muni á næstu vikum vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í samvinnu við helstu lánardrottna sína.

„Skilanefnd Glitnis og stjórnendur Milestone hafa unnið ötullega saman að því á undanförnum mánuðum að tryggja hagsmuni kröfuhafa sem best. Í ljósi þessa eru það ákveðin vonbrigði að þær áætlanir, sem mikil vinna hefur verið lögð í, nái ekki fram að ganga," segir síðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK