Seðlabankinn vill samstarf við fyrirtæki

mbl.is/omar

Seðlabanki Íslands óskar á heimasíðu sinni eftir því að lögaðilar sem hafi áhuga á að taka erlend lán, sem tekin yrðu í krónum en endurgreidd í erlendum gjaldeyri, sendi um það bréf til Seðlabankans fyrir 11. maí næst komandi.

Er það liður í tilraun Seðlabankans til að aðstoða krónubréfaeigendur að skipta krónum í erlendan gjaldeyri. Þeir geti þá keypt skuldabréf íslenskra fyrirtækja fyrir krónur og fengið vexti og höfuðstól greiddan í erlendum gjaldeyri. Þannig minnki þrýstingu á gengi krónunnar og auki líkur á að hægt verði að afnema gjaldeyrishöftin til lengri tíma.

Fyrirhugað er að þessi aðgerð verði endurtekin eftir u.þ.b. mánuð.

„Skilyrði fyrir því að Seðlabankinn heimili slíkar lántökur eru að lánstími sé hið minnsta 7 ár og að fyrirtækið hafi fyrirsjáanlegar tekjur í erlendum gjaldmiðli sem nægi til að standa skil á greiðslum vegna lánsins. Erindi vegna þessa skal stíla á bankastjóra Seðlabanka Ísland,“segir á heimasíðu Seðlabankans.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK