Ekki byggt á gögnum Landsbanka

Icesave reikningur Landsbankans
Icesave reikningur Landsbankans Retuers

Páll Benediktsson, talsmaður skilanefndar Landsbankans, vill koma því á framfæri að mat bresku endurskoðunarsamtökin CIPRA, sem birtist í fréttabréfi þeirra í maí, um að eignir Landsbankans geti staðið undir allt að 95 prósent af andvirði Icesave innistæðutrygginganna sé ekki byggt á upplýsingum frá skilanefndinni.

Páll segir að í skýrslu CIPRA sé vitnað í almenn gögn sem skilanefndin birti í febrúar og sýndu um 89 prósent endurheimt upp í Icesave-kröfurnar. Páll segist ekki skilja hvernig þau gögn sýni síðan allt í einu fram á 95 prósent endurheimtarhlutfall.

„Við höfum ekki veitt CIPRA neinar upplýsingar né nein gögn. Þeir vísa hins vegar í almenn gögn, en við vörum að birta ný gögn í dag þar sem kemur fram að 83 prósent fáist upp í forgangskröfur miðað við stöðuna eins og hún var í lok apríl. Við þekkjum ekki til þess að þeir geti haft neinar ábyggilegar upplýsingar frá öðrum aðilum sem gera það að verkum að þeir geti dregið þær ályktanir sem settar eru fram í fréttabréfinu."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK