Krafa Bjarna átti ekki að vera í kröfuskránni

Krafa Landsýnar ehf., félags Bjarna Ármannssonar fyrrum forstjóra Glitnis, upp á 3,9 milljarða króna, var frágengin og átti samkvæmt heimildum Morgunblaðsins ekki að birtast í kröfulista þeim sem skilanefnd sendi frá sér í gær.

Skilanefnd Glitnis sendi í dag frá sér fréttatilkynningu, þar sem fram kom að Bjarni Ármannsson hefði endurgreitt 650 milljónir króna sem hann hefði fengið frá bankanum vegna starfsloka sinna 2007. Í tilkynningunni sagði einnig að einu kröfur Bjarna og félaga hans á hendur bankanum næmu 273 milljónum króna.

Það stangaðist á við  upplýsingar úr kröfulistanum, sem birtust á mbl.is fyrr í dag, um að krafa Bjarna og félaga hans næmi rúmum fjórum milljörðum króna. Skýringin er semsagt sú, að búið var að ganga frá fyrrnefndri 3,9 milljarða króna kröfu áður en listinn var birtur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK