Mikil lækkun á mörkuðum

Það ríkir lítil gleði á fjármálamörkuðum í dag
Það ríkir lítil gleði á fjármálamörkuðum í dag Reuters

Hlutabréfavísitölur hafa lækkað mikið víðsvegar um heiminn í dag. Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu og Asíu hafa lækkað umtalsvert. Til að mynda hefur FTSE vísitalan í Lundúnum lækkað um 2,73% í morgun en hún hefur lækkað um meira en 10% á rúmum mánuði. Í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 2,78% og CAC í París um 3,24%.

Í norrænu kauphöllunum er lækkunin einnig mikil. Samnorræna vísitalan Nordic 40 hefur lækkað um 3,21%, í Kaupmannahöfn 2,15%, Stokkhólmi 2,30%, Helsinki 3,22% og í Ósló nemur lækkunin 4,14%.

Nikkei hlutabréfavísitalan lækkaði 3,1% í Tókýó og í Seúl nam lækkunin  2,7%. Í Ástralíu lækkaði vísitalan um rúm 3% og eins lækkuðu hlutabréfavísitölur í Taívan, Hong Kong, Singapúr, Indónesíu, Kína, Indlandi, Malasíu og Taílandi.

Helstu skýringar á lækkunum í dag má rekja til óvissu um stöðu efnahagsmála í Evrópu. Hafa margir fjárfestar litla trú á því að fjárhagur ríkja í Evrópu fari batandi og ekki bætti úr skák fregnir af björgun spænsks sparisjóðs um helgina og ný skýrsla Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um Spán.

Í Asíu höfðu deilur Kóreuríkjanna einnig áhrif en óttast ýmsir að þær geti endað með stríðrekstri.

Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street í gærkvöldi og jók það enn á svartsýni meðal fjárfesta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK