Vara við annarri kreppu

Mörg Evrópusambandsríki eiga við mjög alvarlegan skuldavanda að etja.
Mörg Evrópusambandsríki eiga við mjög alvarlegan skuldavanda að etja. Reuters

Hætta er á að önnur kreppa muni skella á einhverjum Evrópuríkjum takist Evrópusambandinu ekki að koma böndum á skuldavanda svæðisins, að mati Alþjóðabankans. Slík niðursveifla gæti haft alvarleg áhrif langt út fyrir Evrópu, meðal annars í Asíu og S-Ameríku.

Andrew Burns, einn framkvæmdastjóra bankans, sagði að búist væri við því að hagvöxtur í Evrópu á öðrum ársfjórðungi yrði minni en áður hafði verið gert ráð fyrir og hugsanlega yrði að nýju samdráttur í nokkrum ríkjum.

Ummæli Burns koma þeim líklega ekki á óvart sem fylgst hafa með þróun hlutabréfaverðs, en það hefur lækkað skarpt undanfarna tvo mánuði. Óttast fjárfestar að skuldavandi Evrópuríkja muni leiða til þess að ný lausafjárkreppa myndist.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur í sama streng og segir að útlit í efnahagsmálum heimsins sé nú mun verra en áður og að stjórnvöld hafi mjög takmarkað ráðrúm til að ýta undir hagvöxt.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK