10-11 fært í Eignabjarg

Rekstrarfélag 10-11, sem verður fært út úr Hagasamstæðunni, verður fært inn í eitt eignarhaldsfélaga Arionbanka, Eignabjarg.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu bankans er Eignabjargi ætlað að taka yfir eignarhluti í stærri fyrirtækjum sem bankinn eignast við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Eignabjarg hefur jafnframt umsjón með sölu á eignum í samstarfi við fyrirtækjaráðgjöf bankans.

Stjórnarformaður Rekstrarfélags 10-11 er Bergþór Konráðsson, starfsmaður Arionbanka. Bergþór er jafnframt stjórnarformaður Eignabjargs.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK