Ekki eigi að vísa málinu frá

mbl.is/Kristinn

Slitastjórn Glitnis hefur lagt greinargerðir fyrir dómstól í New York þar sem færð eru rök fyrir því að ekki eigi að vísa skaðabótamáli Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum frá dómi.

Er meðal annars vísað til þess, að þeir sem málið beinist gegn hafi sagt að margir þeirra, sem þeir þyrftu að kalla fyrir sem vitni, hafi lýst því yfir að þeir myndu ekki fara til New York. Í greinargerð Glitnis er hins vegar sagt, að meðal annars Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Alexander K. Guðmundsson, fyrrverandi fjármálastjóri, hafi báðir lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir til að mæta fyrir réttinum í New York. 

Í greinargerð slitastjórnarinnar eru einnig taldir upp fleiri einstaklingar, sem hafi lýst því yfir að þeir séu tilbúnir til að bera vitni. 

Í einni af greinargerðum slitastjórnarinnar, sem lagðar voru fyrir dóminn í gær, segir að umræddir einstaklingar hafi, undir forustu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, misnotað stöðu sína í Glitni til að afla fjár á fjármálamarkaði í New York í september 2007. Sú fjáröflun hafi gert þeim kleift að halda áfram að ræna Glitni innanfrá.

Slitastjórnin segir að í ágúst 2007 hafi umræddir einstaklingar sóað mestu lausafé Glitnis með því að lána tengdum aðilum gríðarlegar fjárhæðir. Þetta hafi byrjað í apríl 2007 þegar Jón Ásgeir náði valdi á bankanum.

Til að afla fjár hafi umræddir einstaklingar komið til New York og lagt fram rangar upplýsingar fyrir hugsanlega fjárfesta. Meðal annars hafi þeir leynt því hve bankinn hafði lánað mikið til tengdra aðila. Hefði það komið fram í skuldabréfaútboðinu í New York hefði þeim ekki tekist að afla fjár til að halda áfram að fjármagna ólögleg viðskipti sín. 

Þá vísar slitastjórnin  á bug fullyrðingum Pálma Haraldssonar og Hannesar Smárasonar að þeir hafi engin tengsl við New York.  Í einni af greinargerðunum er meðal annars vísað til þeirrar fullyrðingar Pálma að flugfélagið Iceland Express tengist ekki með neinum hætti þessu máli. Þetta sé einfaldlega rangt því Pálmi hafi notað fé frá Glitni til að kaupa flugfélagið - fé sem hefði ekki verið handbært hefði bankinn ekki farið í útboðið í New York.

Greinargerð slitastjórnar Glitnis

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK