Ríkissjóður býðst til að kaupa erlend skuldabréf

mbl.is/Ernir

Seðlabanki Íslands, fyrir hönd ríkissjóðs, býðst til að kaupa á nafnverði, að hluta eða í heild, þau erlendu skuldabréf ríkissjóðs sem falla í gjalddaga árin 2011 og 2012. 

Um er að ræða tvö skuldabréf í evrum sem upphaflega voru að fjárhæð 1250 milljónir evra, 204 milljarðar króna, að nafnvirði. Seðlabankinn hefur þegar keypt hluta þessara bréfa á markaði, en enn eru um 800 milljónir evra, um 130 milljarðar króna, útistandandi.

Segir Seðlabankinn, að þessi kaup séu þáttur í lausafjár- og skuldastýringu ríkisjóðs, en einnig liður í gjaldeyrisforðastýringu Seðlabanka Íslands. 

Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 767 milljörðum króna, 4,7 milljarða evra, í lok mars 2011. Segir á heimasíðu Seðlabankans, að bankinn og ríkissjóður séu því í góðri stöðu til að greiða þau erlendu lán sem falla í gjalddaga samkvæmt lánasamningum á næstu árum, þar á meðal þau skuldabréf sem hér um ræði.

Endurkaupin skapi einnig tækifæri til að bæta ávöxtun gjaldeyrisforðans í núverandi lágvaxtaumhverfi. Að auki sé höfð hliðsjón af nýlegum tilkynningum frá lánshæfismatsfyrirtækjum og gefi tilboðið eigendum verðbréfanna færi á að selja þau á nafnverði með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa.

Útboðið geti einnig gefið ríkissjóði upplýsingar um afstöðu erlendra fjárfesta gagnvart Íslandi í því ástandi sem nú er uppi sem einkennist annars vegar af verulega bættri stöðu efnahagsmála og hins vegar af óvissum horfum varðandi lánshæfismat ríkissjóðs í kjölfar þess að Icesave-samkomulaginu var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Tilboðið stendur til 5. maí næstkomandi og verður niðurstaða þess kynnt opinberlega eigi síðar en 6. maí 2011.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK