Fjárlagahalli Portúgals meiri en talið var

Portúgalski fáninn.
Portúgalski fáninn.

Stjórnvöld í Portúgal hafa í annað sinn sent Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, endurskoðaðar upplýsingar um fjárlagahallann á síðasta ári.  Samkvæmt nýju tölunum nam hann 9,1% af vergri landsframleiðslu en áður hafði Portúgal tilkynnt að hallinn hefði verið 8,6% af landsframleiðslu.

Samkvæmt reglum Efnahags- og myntbandalags Evrópu má fjárlagahalli evruríkja ekki fara yfir 3% af vergri landsframleiðslu

Hagstofa Portúgals segist hafa endurskoðað tölurnar eftir að í ljós kom að opinberar lántökur voru hærri en áður var talið.

Portúgal er nú að semja við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um lánafyrirgreiðslu til að bjarga efnahag landsins. .

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK