Algjört hrun á mörkuðum

Reuters

Svo virðist sem skelfing ríki á hlutabréfamörkuðum víða um heim nú síðdegis þar sem allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað um 2-3,6%.

Í Bandaríkjunum hefur Dow Jones vísitalan lækkað um 2,12% en viðskipti hófust þar um hádegisbilið á íslenskum tíma og  Nasdaq hefur lækkað um 2,72%.

Í Evrópu er staðan enn verri en í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 3,6%, FTSE í Lundúnum um 3,08% og CAC í París um 2,47%.

Í Madríd hefur hlutabréfavísitalan lækkað um 3,20% og í Mílanó um rúm 3%. Í Sviss nemur lækkunin 3,58%.

Svo virðist sem lækkunina megi aðallega rekja til þess að bankastjóra Seðlabanka Evrópu mistókst að sannfæra fjárfesta um að ástandið evru-svæðinu sé viðunandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK