Óbreyttir vextir

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ernir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Er það í takt við spá greiningar Íslandsbanka en greiningardeild Arion-banka hafði spáð vaxtahækkun.

Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana eru því 3,5%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,50%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,75%, svonefndir stýrivextir, og daglánavextir 5,75%.

Verðbólga áfram mikil

Samkvæmt uppfærðri spá Seðlabankans, sem birtist í Peningamálumí dag, heldur efnahagsbatinn áfram, þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa sé mikil. Horfur um efnahagsumsvif eru í megindráttum svipaðar og í nóvemberspá Seðlabankans. Verðbólguhorfur til skamms tíma eru einnig í takt við það sem gert hafði verið ráð fyrir, þótt nú sé spáð heldur hægari hjöðnun verðbólgu á árinu. Haldist gengi krónunnar svipað og það er nú, er því spáð að verðbólga verði fyrir ofan verðbólgumarkmið bankans heldur lengur en spáð var í nóvember.

Eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum verður nauðsynlegt að draga úr slaka peningastefnunnar. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Batni verðbólguhorfur ekki er líklegt að hækka þurfi nafnvexti á næstunni til þess að taumhald peningastefnunnar, sem er enn tiltölulega laust, verði hæfilegt, segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK