Landsbankinn fær 19,2 milljarða vegna yfirtöku á SpKef

 Endurgjald til Landsbankans hf. vegna yfirtöku á innstæðum og eignum SpKef sparisjóðs skulu nema samtals 19,2 milljörðum króna, samkvæmt niðurstöðu úrskurðarnefndar sem sett var á laggirnar með samningi milli íslenska ríkisins og Landsbankans hf. í því skyni að skera úr um endurgjald til Landsbankans hf. vegna yfirtöku á Spkef sparisjóði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Með greiðslunni til Landsbankans hf. fyrir yfirtöku á eignum og skuldum í SpKef sparisjóði, er íslenska ríkið að efna þau fyrirheit að tryggja allar innstæður hér á landi og óskert aðgengi innstæðueigenda að fjármunum sínum á hverjum tíma.

Úrskurðarnefnd, sem sett var á laggirnar með samningi milli íslenska ríkisins og Landsbankans hf. í því skyni að skera úr um endurgjald til Landsbankans hf. vegna yfirtöku á Spkef sparisjóði, kvað upp úrskurð sinn í gær.

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar er sú að endurgjald til Landsbankans hf. vegna yfirtöku á innstæðum og eignum SpKef sparisjóðs skuli nema samtals kr. 19.198.000.000. Með úrskurðinum er endanlega leyst úr ágreiningi milli aðila um greiðslu til Landsbankans hf. vegna yfirtöku á SpKef sparisjóði.

Uppgjör til Landsbankans verður samkvæmt samningi aðila í formi ríkisskuldabréfs (RIKH 18), sem er á gjalddaga þann 9. október 2018.

SpKef sparisjóður var stofnaður af fjármálaráðuneytinu í apríl 2010 í því skyni að taka við eignum og innstæðuskuldbindingum Sparisjóðsins í Keflavík samkvæmt ákvörðun FME með vísan til heimildar í 1. gr. laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl.

Með framangreindri greiðslu til Landsbankans hf. fyrir yfirtöku á eignum og skuldum í SpKef sparisjóði, er íslenska ríkið að efna þau fyrirheit að tryggja allar innstæður hér á landi og óskert aðgengi innstæðueigenda að fjármunum sínum á hverjum tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK