Stýrivextir hækka um 0,25%

Frá höfuðstöðvum Seðlabanka Íslands.
Frá höfuðstöðvum Seðlabanka Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Hinir eiginlegu stýrivextir eru þá nú 5,75%.

Þjóðhagsreikningar fyrir fyrsta fjórðung ársins 2012 eru í stórum dráttum í samræmi við spá bankans frá því í maí um að hagvöxtur myndi halda áfram að draga úr slakanum í þjóðarbúskapnum. Efnahagsbatinn nær nú til flestra sviða efnahagslífsins og þróttur innlendrar eftirspurnar er töluverður. Merki um bata á vinnu- og fasteignamarkaði verða æ skýrari, segir í yfirlýsingu bankans.

Verðbólga hjaðnaði nokkuð í maí. Eftir sem áður eru horfur á því að hún verði lengur fyrir ofan verðbólgumarkmið en ásættanlegt er, einkum ef gengi krónunnar helst áfram lágt.

Óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum hefur aukist að undanförnu, ekki síst vegna fjármálakreppunnar í Evrópu. Þessar aðstæður valda frekari óvissu um innlendar efnahags- og verðbólguhorfur. Peningastefnan gæti því á næstunni þurft að bregðast við atburðum sem hefðu umtalsverð áhrif á hagvöxt og verðbólgu hér á landi. Eins og endranær mun peningastefnunefndin þá miða að því að ná verðbólgumarkmiði til lengdar á sama tíma og reynt yrði að draga úr innlendum efnahagssveiflum.

Laust taumhald peningastefnunnar á undanförnum misserum hefur stutt við efnahagsbatann. Hækkun vaxta í maí og nú aftur í júní hefur dregið úr slaka peningastefnunnar eins og eðlilegt er í ljósi efnahagsbatans og verri verðbólguhorfa. Eftir því sem efnahagsbatanum vindur frekar fram og slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, segir í yfirlýsingu bankans.

Daglánavextir eftir ákvörðunina eru nú 6,75%, vextir af lánum gegn veði til sjö daga 5,75%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 5,50% og innlánsvextir 4,75%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK