Gjaldþrotum fækkar um 31%

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Fyrstu 10 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 910, sem er tæplega 31% fækkun frá sama tíma í fyrra þegar 1.317 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. Flest gjaldþrot, það sem af er árinu eru í flokknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 189 talsins.

Alls voru 118 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í októbermánuði, flest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Í októbermánuði voru skráð 155 ný einkahlutafélög, flest í fasteignaviðskiptum. Til samanburðar voru 143 ný einkahlutafélög skráð í október í fyrra. Fyrstu 10 mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 1.473, en það er rúmlega 5% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 1.398 fyrirtæki voru skráð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK