Útlán á raunvirði minnka milli ára

Útlán viðskiptabankanna þriggja hafa minnkað að raunvirði milli ára.
Útlán viðskiptabankanna þriggja hafa minnkað að raunvirði milli ára. mbl.is/Golli

Útlán þriggja stærstu bankanna til viðskiptavina jukust um 1,4% á síðasta ári. Yfir sama tímabil hækkaði vísitala neysluverðs um 4,2% og hagvöxtur á liðnu ári mældist 1,6% samkvæmt bráðabirgðamælingu Hagstofunnar. Hvort sem leiðrétt er fyrir verðlagsáhrifum eða vexti hagkerfisins þá drógust útlán bankanna saman að raunvirði. Þetta kemur fram í greiningu Arion banka, en samdrátturinn mældist um 3% þegar leiðrétt er fyrir vísitölunni.

Þá kemur fram að heildarútlán í árslok 2012 mældust 105% af vergri landsframleiðslu þess árs. Til samanburðar voru útlán bankanna í lok árs 2011 samtals 108% af landsframleiðslu. Segir greiningin að meðal skýringa á því hvers vegna útlánasafn bankakerfisins skrapp saman megi nefna að enn séu lítil og meðalstór fyrirtæki afar skuldsett og því lítið svigrúm til frekari skuldsetningar.

Þá hafa fyrirtæki greitt upp skuldir auk þess sem færst hefur í vöxt hjá stærri fyrirtækjum að fara í eigin skuldabréfaútgáfu við endurfjármögnun lána. Þá hægði verulega á vexti hagkerfisins sem dragi ef til vill úr hvata einhverra fyrirtækja til frekari skuldsetningar.

Útlán Landsbankans jukust mest

Samtals var staða útlána þriggja stærstu bankanna til viðskiptavina í lok síðasta árs 1.791 milljarðar að sögn greiningarinnar. Útlán Landsbankans til viðskiptavina jukust hlutfallslega mest á síðasta ári að nafnvirði eða um 4% á meðan útlán Arion banka jukust um 1% og útlán Íslandsbanka minnkuðu um 1%.

Stærstur hluti útlána bankanna eru til einstaklinga en þar á eftir koma útlán til sjávarútvegs, fasteignafélaga og verslunar og þjónustu, þessi skipting byggir á flokkum sem birt er í ársreikningum bankanna þriggja.

Útlán bankanna og skipting milli flokka.
Útlán bankanna og skipting milli flokka. Mynd/Greiningardeild Arion banka
Útlán til einstaklinga og sjávarútvegs eftir bönkum.
Útlán til einstaklinga og sjávarútvegs eftir bönkum. Mynd/greiningardeild Arion banka
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK