Gjaldþrot Mótormax 750 milljónir

Magnús Kristinsson var eigandi Mótormax, en félagið skildi eftir sig …
Magnús Kristinsson var eigandi Mótormax, en félagið skildi eftir sig 750 milljóna gjaldþrot. Rax / Ragnar Axelsson

Gjaldþrot félagsins Mótormax ehf. nam rúmum 750 milljónum samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag. Lýstar kröfur í búið voru tæplega 908 milljónir, en 155 milljónir fengust upp í veðkröfur. Ekkert var greitt upp í almennar kröfur að fjárhæð 752,8 milljónir. 

Félagið rak stórverslun í Reykjavík sem seldi meðal annars fjórhjól, götuhjól, sæþotur, hjólhýsi, húsbíla, fellihýsi, hraðbáta og annan mótorsportvarning. Það var í eigu Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns og fyrrverandi eiganda Toyota á Íslandi.

Mál Mótormax fékk mikla umfjöllun í kjölfar málaferla sem Landsbankinn höfðaði á hendur búinu. Í máli bankans gegn þrotabúinu snerist deilan um lán, sem Landsbankinn taldi að fæli í sér skuldbindingu í erlendri mynt. Í febrúar 2011 dæmdi héraðsdómur að lánið væri í íslenskum krónum en gengistryggt og þar með ólöglegt. Í júní sama ár staðfest Hæstiréttur dóm héraðsdóms.

Efnisorð: gjaldþrot
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK